Vegferð ákæruvaldsins til skammar

Í gær féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness þar sem skjólstæðingur okkar var sýknaður af öllum ákærum. Málið er skýrt dæmi um hversu mikilvægt er að tryggja réttarríkið og réttláta málsmeðferð – einnig þegar ákæruvaldið ákveður að sækja mál sem voru fyrirséð að myndu ekki leiða til sakfellingar. 
Lögmaður okkar, Sævar Þór Jónsson, lýsti því yfir að vegferð ákæruvaldsins hafi verið til skammar og gagnrýnir harðlega ómarkviss vinnubrögð sem bitna ekki einungis á réttindum einstaklings heldur einnig á opinberu fé og trausti til kerfisins. 
Réttlæti og fagleg nálgun skiptir máli. Við hjá Sævars Þórs & partners munum áfram standa vörð um rétt skjólstæðinga og tryggja að lög og réttur séu virt – í öllum málum.

Eftir Sævar Þór Jónsson
•
1. september 2026
Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi Sævars Þórs & Partners, var nýverið endurkjörinn formaður stjórnar Hugarafls, grasrótarsamtaka fólks með reynslu af andlegum áskorunum. Sævar Þór hefur setið í stjórninni frá árinu 2024 ásamt Birki Jóni Jónssyni og Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur, en Einar Benedikt Sigurðsson kom nýr inn í stjórnina að þessu sinni. Að sögn Sævars Þórs er meginmarkmið stjórnarinnar að styðja við stjórnendur og starfsfólk samtakanna og efla samskipti við stjórnvöld og samfélagið. Hann leggur jafnframt áherslu á mikilvægi markaðsátaksins Allt í lagi, sem ætlað er að vekja athygli á starfi Hugarafls og tryggja að raddir notenda þjónustunnar heyrist í umræðu um geðheilbrigðismál. Á Sævari Þór & Partners er lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð og stuðning við mikilvæg málefni á borð við geðheilbrigði, sem endurspeglast í þátttöku Sævars Þórs í starfi Hugarafls.

Eftir Sævar Þór Jónsson
•
21. ágúst 2026
Sævar Þór og Partners er annað árið í röð meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem standast öll skilyrði í greiningarvinnu Creditinfo og hefur verið útnefnt Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Við erum afar stolt yfir að hljóta þessa viðurkenningu á nýjan leik og þakklát okkar samhenta teymi og þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem treysta okkur fyrir krefjandi verkefnum. Framúrskarandi fyrirtæki er vottun Creditinfo til þeirra íslensku fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á traustum stoðum og hafa náð framúrskarandi árangri í rekstri.

Eftir Sævar Þór Jónsson
•
20. ágúst 2026
Ekki leið langur tími á milli þess að MAST sendi boðun um stöðvun á starfsemi Sólhesta og fallið var frá henni. Stöðvunin hafði verið boðuð þann 25. mars en var dregin til baka þann 10. apríl sl. Í millitíðinni hafði Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður sent MAST andmæli við stöðvuninni fyrir hönd Sólhesta „Í samskiptum mínum við MAST var þeim bent á að umbjóðendur mínir, sem höfðu þá tiltölulega nýlega tekið við rekstrinum, voru að fara út í miklar breytingar sem þá þegar voru hafnar. MAST fór í úttekt á því og komst að þeirri niðurstöðu að sú væri raunin,“ segir Sævar Þór. Hér má lesa nýlega frétt á RÚV um málið.






