Tugir milljóna í bætur vegna mistaka við leghálsskimun

Krabbameinsfélagið greiðir tugi milljóna króna í bætur til konu, sem fékk ranga greiningu á leghálssýni vegna mistaka við skimun hjá félaginu. Konan er með ólæknandi og banvænt krabbamein, sem hefði verið hægt að bregðast við ef það hefði uppgötvast fyrr.


Krabbameinið greindist of seint vegna mistaka

Konan, sem er ríflega fimmtug móðir og er nýlega orðin amma, fór í leghálsskimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins árið 2018 án athugasemda en greindist með krabbamein tveimur árum síðar. Endurskoðun á sýninu frá 2018 leiddi í ljós að það hafði verið ranglega greint. Ef meinið hefði fundist fyrr hefði verið hægt að grípa til aðgerðar, en vegna þess hversu langur tími var liðinn er það ekki lengur skurðtækt. Nú hefur verið skrifað undir dómsátt í málinu.



„Það er ánægjulegt að það hafi náðst sátt í þessu máli þar sem að umbjóðandi minn er auðvitað veik og óljóst hvernig framhaldið verður hjá henni þannig að það var ákveðinn léttir að við skyldum ná sátt allavega fyrir jól,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður konunnar.


Bótafjárhæðin nemur í tugum milljóna króna. Sævar segir að þetta sé ákveðin viðurkenning á því að þarna hafi verið gerð mistök. „Auðvitað er það þannig þegar menn greiða svona bætur og það lá fyrir í þessu máli alla vega að þeir viðurkenndu mistök.“


Fleiri mál til meðferðar

Mál konunnar varð til þess að um fimm þúsund sýni voru endurskoðuð hjá Krabbameinsfélaginu og meira en tvö hundruð konur voru kallaðar inn til frekari skoðunar, eftir að í ljós kom að sýni þeirra höfðu ekki verið greind á réttan hátt. Nokkur mál eru til skoðunar hjá Landlækni.


Sævar segist vona að þessi sátt sé fordæmisgefandi. „Auðvitað erum við vongóð um það að ef til þess kemur að það séu fleiri mál sem falla undir þessa bótakröfu að það verði þá hægt að ljúka þeim með sátt eins og í þessu máli.“


Sævar segir að dómsáttin í þessu máli sé ásættanleg, þó að auðvitað sé aldrei hægt að meta svona skaða til fjár. „Það er þyngra en tárum taki. Við erum að tala um mannslíf í þessu tilviki og það verður aldrei hægt að bæta úr því, þó að fjármunirnir séu verulegir þá er það ekki nóg,“ segir Sævar. 


Eftir Sævar Þór Jónsson • 28. september 2026
Íslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals og ofbeldis hér á landi. Ég hef því miður kynnst þessum málum í stöfum mínum sem lögmaður og ítrekað fengið inn á mitt borð viðkvæm mál þar sem konur í viðkvæmri stöðu vegna fötlunar, alvarlegrar neyslu eða erfiðra félagslegra aðstæðna eru skipulega nýttar af mönnum af erlendum uppruna í þeim eina tilgangi að tryggja þeim síðarnefndu landvistarleyfi og fjárhagslegan ávinning. Þetta er kerfislægt ofbeldi þar sem fórnarlömbin eru undir ægivaldi gerendans. Konurnar eru ekki aðeins beittar kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi, heldur eru þær notaðar fjárhagslega. Þær eru neyddar til þess að taka lán, láta af hendi fjármuni eða afhenda húsnæði sem þær hafa fengið í gegnum félagslega kerfið, svo hægt sé að nota það í annarlegum tilgangi. Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera. Umfang þessa vandamáls er dulið, en alþjóðlegar og innlendar skýrslur sýna að þolendur með fötlun eða í virkri neyslu eru í margfaldri hættu á að verða fyrir mansali þar sem gerendur nýta sér bágborna stöðu þeirra. Jafnvel þótt þessi vandi sé þekktur að nokkru leyti innan réttarvörslukerfisins þá er blasir við mikið úrræðaleysi og vangeta til þess að takast á við hann. Úrræðaleysið ristir dýpst þegar börn eiga í hlut. Þekkt eru sláandi dæmi þess að barnaverndaryfirvöldum hafi borist skýrar og alvarlegar tilkynningar um mál þar sem rökstuddur grunur leikur á að börn séu ekki aðeins vitni að ofbeldi heldur sjálf að verða fyrir líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á heimilinu. Samt sem áður gerist lítið sem ekkert. Skýringar yfirvalda eru af skornum skammti og aðgerðaleysið er æpandi. Þegar stofnanir eru veikburða og hafa ekki nægileg sterk lagaleg úrræði til að grípa til verður staða þessara kvenna og barna hreinlega hræðileg og vonlaus. Kerfið virðist lamast þegar flækjustig mála eykst, sem verður til þess að viðkvæmustu hópar samfélagsins búa við algjört bjargarleysi. Oft leysast þessi mál þegar gerandi er kominn með langan sakaferli eða er undir rannsókn fyrir önnur alvarleg brot, þá fyrst getur lögreglan loksins skorist í leikinn og gripið inn í. Þolendur þessara brota eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að gerendur þeirra brjóti af sér margsinnis annars staðar áður en hægt er að grípa inn og bjarga einstaklingum í viðkvæmri stöðu, konum, og saklausum börnum þeirra, úr prísund nútímaþrælahalds. Það verður að vera hægt að grípa inn í og aðstoða þolendur undan þeim brotum sem framin eru á þeim. Það verður að rjúfa þögnina og krefjast þess að yfirvöld opni augun fyrir þessu skuggamansali, ef svo má að orði komast, áður en fleiri líf verða lögð í rúst. Það er siðferðisleg skylda okkar sem samfélags að vernda þá sem geta ekki varið sig sjálfir. 
15. september 2026
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur verið útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 á samnefndum lista sem er samstarfsverkefni Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er þriðja árið í röð sem stofan hlýtur þessa viðurkenningu.  Við val á Fyrirmyndarfyrirtækjum eru metin fjölmörg atriði, þar á meðal afkoma, eiginfjárhlutfall, stöðugleiki og aðrar rekstrarlegar forsendur. Fyrirtæki sem eru tilnefnd þurfa að uppfylla ströng skilyrði í greiningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins. „Að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð er staðfesting á því að við séum á réttri leið og að sá agi sem við höfum lagt í reksturinn skili sér. Þetta er ekki síst hvatning til okkar sjálfra um að halda áfram að vanda okkur, bæði í rekstri og í þjónustu við okkar skjólstæðinga,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður. Viðurkenningin sannar enn og aftur að velgengni þarf ekki eingöngu að mælast í stærð eða fjölda starfsfólks, heldur einnig í traustum rekstri, góðu stjórnunarstigi og starfsvenjum sem lúta hæstu viðmiðum um gæði. Með þriðju viðurkenningunni í röð hefur Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners fest sig enn frekar í sessi sem leiðandi fyrirtæki í sínu fagi – og meðal þeirra fáu lögmannsstofa sem uppfylla ströngustu kröfur um samkeppnishæfa eiginfjárstöðu, stöðuga afkomu og ábyrgð í rekstri.
3. september 2026
Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli um milligöngu við bifreiðakaup, mál nr. 529/2026 Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Vesturlands um að vísa frá dómi máli þar sem sóknaraðili krafðist greiðslu eftirstöðva vegna milligöngu um kaup á bifreið fyrir varnaraðila, á grundvelli munnlegs samkomulags. Sóknaraðili hafði annast kaupin í gegnum atvinnurekstur sinn í Þýskalandi. Héraðsdómur hafði talið málið vanreifað og óvissu ríkja um samningssamband og aðild, meðal annars vegna óskýrleika um félagaform rekstrar sóknaraðila erlendis. Landsréttur taldi hins vegar málatilbúnað sóknaraðila nægilega skýran til að varnaraðili gæti tekið til varna og dómari leyst úr málinu. Í niðurstöðu Landsréttar kom fram að ágreiningur um hvort munnlegt samkomulag hefði komist á, sem og hvort sóknaraðili gæti sótt kröfuna í eigin nafni, séu atriði sem eigi að skera úr um við efnismeðferð málsins, ekki formgallar sem leiði eigi til frávísunar. Þá áréttaði rétturinn leiðbeiningarskyldu dómara samkvæmt 104. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, komi til þess að frekari skýringa sé þörf. Málinu var vísað aftur til Héraðsdóms Vesturlands til efnismeðferðar.