Lögmannsstofan Sævar Þór og Partners er fyrirmyndarfyrirtæki 2025 – annað árið í röð

Blátt og hvítt merki fyrir árið 2024

Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur verið útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2025 á samnefndum lista sem er samstarfsverkefni Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er í annað skiptið í röð sem stofan hlýtur þessa viðurkenningu sem er veitt fyrirtækjum sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í rekstri.


Við val á Fyrirmyndarfyrirtækjum eru metin fjölmörg atriði, þar á meðal afkoma, eiginfjárhlutfall, stöðugleiki og aðrar rekstrarlegar forsendur. Fyrirtæki sem eru tilnefnd þurfa að uppfylla ströng skilyrði í greiningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins.


„Það er okkur mikill heiður að fá þessa viðurkenningu aftur. Hún kallar ekki aðeins fram þakklæti hjá okkur heldur er einnig hvatning um áframhaldandi gott starf. Að vera meðal þeirra fáu sem ná þessum stöðlum meðal lögmannsstofa og fyrirtækja almennt, er okkur mikill innblástur til að gera enn betur,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður.


Viðurkenningin sannar að velgengni þarf ekki eingöngu að mælast í stærð eða fjölda starfsfólks, heldur einnig í traustum rekstri, góðu stjórnunarstigi og starfsvenjum sem lúta hæstu viðmiðum um gæði. Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur með þessari viðurkenningu staðfest stöðu sína sem leiðandi í sínu fagi – og fest sig í sessi meðal fyrirtækja sem uppfylla kröfur um samkeppnishæfa eiginfjárstöðu, stöðuga afkomu og ábyrgð í rekstri.

17. janúar 2026
gær féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness þar sem skjólstæðingur okkar var sýknaður af öllum ákærum. Málið er skýrt dæmi um hversu mikilvægt er að tryggja réttarríkið og réttláta málsmeðferð – einnig þegar ákæruvaldið ákveður að sækja mál sem voru fyrirséð að myndu ekki leiða til sakfellingar.  Lögmaður okkar, Sævar Þór Jónsson, lýsti því yfir að vegferð ákæruvaldsins hafi verið til skammar og gagn­rýnir harðlega ómarkviss vinnubrögð sem bitna ekki einungis á réttindum einstaklings heldur einnig á opinberu fé og trausti til kerfisins.  Réttlæti og fagleg nálgun skiptir máli. Við hjá Sævars Þórs & partners munum áfram standa vörð um rétt skjólstæðinga og tryggja að lög og réttur séu virt – í öllum málum. Lesa grein hér
12. janúar 2026
Í nýlegri umfjöllun fjölmiðla kemur fram að barn, sem grunur lék á um ofbeldi í leikskóla, hafi ekki notið réttargæslu þrátt fyrir að skilyrði samkvæmt lögum virðist hafa verið til staðar. Málið varpar ljósi á mikilvægi þess að réttindi barna séu tryggð í framkvæmd, sérstaklega þegar þau koma að refsiverðum eða alvarlegum málum. Réttargæsla er lykilþáttur í því að tryggja réttláta málsmeðferð og vernd hagsmuna barnsins, bæði gagnvart kerfinu og öðrum aðilum. Hjá Lögfræðistofan Sævar Þór & Partners leggjum við áherslu á réttaröryggi barna og teljum brýnt að verklag í slíkum málum sé skýrt, samræmt og í fullu samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Fréttina má lesa hér
22. desember 2025
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Hilma Ósk Hilmarsdóttir, lögmaður hér hjá Sævar Þór & Partners, hefur fengið samþykkt prófmál fyrir héraðsdómi til að öðlast réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi. Hilma Ósk lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum á Húsavík árið 2007, hún er með B.A-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2017 og M.L í lögfræði frá sama skóla 2019. Hún hefur áður starfað m.a. hjá Kvennaskólanum í Reykjavík, Fangelsismálastofnun og sem laganemi hjá Rétti – Aðalsteinsson & Partners áður en hún hóf störf hjá Sævar Þór & Partners árið 2020. Við samstarfsfélagar hennar óskum henni innilega til hamingju með þennan áfanga.