Sævar Þór endurkjörinn formaður stjórnar Hugarafls

Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi Sævars Þórs & Partners, var nýverið endurkjörinn formaður stjórnar Hugarafls, grasrótarsamtaka fólks með reynslu af andlegum áskorunum. Sævar Þór hefur setið í stjórninni frá árinu 2024 ásamt Birki Jóni Jónssyni og Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur, en Einar Benedikt Sigurðsson kom nýr inn í stjórnina að þessu sinni.
Að sögn Sævars Þórs er meginmarkmið stjórnarinnar að styðja við stjórnendur og starfsfólk samtakanna og efla samskipti við stjórnvöld og samfélagið. Hann leggur jafnframt áherslu á mikilvægi markaðsátaksins Allt í lagi, sem ætlað er að vekja athygli á starfi Hugarafls og tryggja að raddir notenda þjónustunnar heyrist í umræðu um geðheilbrigðismál.
Á Sævari Þór & Partners er lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð og stuðning við mikilvæg málefni á borð við geðheilbrigði, sem endurspeglast í þátttöku Sævars Þórs í starfi Hugarafls.









