Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli um milligöngu við bifreiðakaup

Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli um milligöngu við bifreiðakaup, mál nr. 529/2026

Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Vesturlands um að vísa frá dómi máli þar sem sóknaraðili krafðist greiðslu eftirstöðva vegna milligöngu um kaup á bifreið fyrir varnaraðila, á grundvelli munnlegs samkomulags. Sóknaraðili hafði annast kaupin í gegnum atvinnurekstur sinn í Þýskalandi.

Héraðsdómur hafði talið málið vanreifað og óvissu ríkja um samningssamband og aðild, meðal annars vegna óskýrleika um félagaform rekstrar sóknaraðila erlendis. Landsréttur taldi hins vegar málatilbúnað sóknaraðila nægilega skýran til að varnaraðili gæti tekið til varna og dómari leyst úr málinu.

Í niðurstöðu Landsréttar kom fram að ágreiningur um hvort munnlegt samkomulag hefði komist á, sem og hvort sóknaraðili gæti sótt kröfuna í eigin nafni, séu atriði sem eigi að skera úr um við efnismeðferð málsins, ekki formgallar sem leiði eigi til frávísunar. Þá áréttaði rétturinn leiðbeiningarskyldu dómara samkvæmt 104. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, komi til þess að frekari skýringa sé þörf.

Málinu var vísað aftur til Héraðsdóms Vesturlands til efnismeðferðar.

Eftir Sævar Þór Jónsson 1. september 2026
Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi Sævars Þórs & Partners, var nýverið endurkjörinn formaður stjórnar Hugarafls, grasrótarsamtaka fólks með reynslu af andlegum áskorunum. Sævar Þór hefur setið í stjórninni frá árinu 2024 ásamt Birki Jóni Jónssyni og Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur, en Einar Benedikt Sigurðsson kom nýr inn í stjórnina að þessu sinni. Að sögn Sævars Þórs er meginmarkmið stjórnarinnar að styðja við stjórnendur og starfsfólk samtakanna og efla samskipti við stjórnvöld og samfélagið. Hann leggur jafnframt áherslu á mikilvægi markaðsátaksins Allt í lagi, sem ætlað er að vekja athygli á starfi Hugarafls og tryggja að raddir notenda þjónustunnar heyrist í umræðu um geðheilbrigðismál. Á Sævari Þór & Partners er lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð og stuðning við mikilvæg málefni á borð við geðheilbrigði, sem endurspeglast í þátttöku Sævars Þórs í starfi Hugarafls. 
Eftir Sævar Þór Jónsson 21. ágúst 2026
Sævar Þór og Partners er annað árið í röð meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem standast öll skilyrði í greiningarvinnu Creditinfo og hefur verið útnefnt Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Við erum afar stolt yfir að hljóta þessa viðurkenningu á nýjan leik og þakklát okkar samhenta teymi og þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem treysta okkur fyrir krefjandi verkefnum. Framúrskarandi fyrirtæki er vottun Creditinfo til þeirra íslensku fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á traustum stoðum og hafa náð framúrskarandi árangri í rekstri.
Eftir Sævar Þór Jónsson 20. ágúst 2026
Ekki leið langur tími á milli þess að MAST sendi boðun um stöðvun á starfsemi Sólhesta og fallið var frá henni.  Stöðvunin hafði verið boðuð þann 25. mars en var dregin til baka þann 10. apríl sl. Í millitíðinni hafði Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður sent MAST andmæli við stöðvuninni fyrir hönd Sólhesta „Í samskiptum mínum við MAST var þeim bent á að umbjóðendur mínir, sem höfðu þá tiltölulega nýlega tekið við rekstrinum, voru að fara út í miklar breytingar sem þá þegar voru hafnar. MAST fór í úttekt á því og komst að þeirri niðurstöðu að sú væri raunin,“ segir Sævar Þór. Hér má lesa nýlega frétt á RÚV um málið.