Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni?

Við lifum á tímum þar sem mannkynið stendur frammi fyrir stærstu og hraðfleygustu tæknibyltingu sögunnar. Örar framfarir í gervigreind eru þegar farnar að gerbreyta vinnumörkuðum, efnahagskerfum, menntakerfum og sjálfum grunnstoðum samfélagsins. Þessi þróun er ekki framtíðarmúsík, hún er að gerast hér og nú. Hún krefst algjörrar endurhugsunar á því hvernig við skipuleggjum ríki, innviði, löggjöf og menntun til framtíðar. Samt sem áður virðist íslensk pólitík vera pikkföst í hjólförum fortíðarinnar. Á meðan heimurinn umbyltist í kringum okkur, eyðum við dýrmætum tíma, fjármunum og pólitískri orku í deilur sem hafa staðið nánast óbreyttar í áratugi.

 

Mesta áhyggjuefnið í íslenskri stjórnmálaumræðu í dag er sú staðreynd að hún snýst enn að stórum hluta um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Við rífumst endalaust um hvort það eigi að „kíkja í pakkann“, ganga til beinna aðildarviðræðna eða loka á þær endanlega. Þetta sýnir gríðarlega skammsýni, bæði í íslenskri samfélagsumræðu og í samhengi við heimspólitíkina. Á meðan stórveldi heimsins og alþjóðleg tæknifyrirtæki keppast við að ná yfirhöndinni í gervigreindartækni og móta leikreglur framtíðarinnar, sitjum við föst í gömlum skotgröfum. Evrópusambandið sjálft á í fullu fangi með að átta sig á eigin stöðu, samkeppnishæfni og flóknu reglugerðarverki gagnvart þessari nýju tækni, en hér heima ræðum við málin eins og heimurinn hafi ekkert breyst síðustu tuttugu árin.

 

Sem lögmaður sé ég daglega hvernig tæknin er að breyta starfsháttum, úrlausn mála og lagaumhverfinu öllu. Gervigreindin mun stýra því hvernig ákvarðanir eru teknar, hvernig fyrirtæki starfa, hvernig upplýsingum er miðlað og hvernig réttindi borgaranna eru tryggð eða skert. Sú spurning hvort Ísland standi framarlega í þessari þróun eða verði aðeins óvirkur neytandi er miklu örlagaríkari fyrir sjálfstæði okkar og efnahagslega velsæld en gamlar pólitískar línur. Við þurfum stjórnmálamenn sem lyfta höfðinu upp úr dægurþrasinu, skilja þessa risavöxnu áskorun og þora að horfa fram á við.

 

Við þurfum framtíðarsýn sem snýst um hvernig við undirbúum íslenskt samfélag undir tæknivædda framtíð. Það þarf að ræða nýsköpun af alvöru, endurskoðun menntakerfisins, siðfræði gervigreindar, persónuvernd og hvernig við verndum íslenska hagsmuni, tungumál og menningu í stafrænum heimi þar sem landamæri skipta sífellt minna máli. Í stað þess að ræða hvernig við getum nýtt tæknina til að auka framleiðni og bæta lífskjör á Íslandi, virðist pólitíkin haldin ákveðinni tregðu til að takast á við hið nýja.

 

Það er dýrkeypt að láta gamlar pólitískar deilur skyggja á stærstu áskorun samtímans. Heimspólitíkin er að breytast og valdahlutföll hliðrast til vegna tæknilegra yfirburða, en ekki vegna þess hverjir sitja við samningaborð í Brussel. Ef við höldum áfram að horfa í baksýnisspegilinn í stað þess að horfa fram á veginn, munum við dragast aftur úr öðrum þróuðum þjóðum. Íslensk pólitík verður að vakna og átta sig á því hvar raunverulegu breytingarnar eru að eiga sér stað. Framtíðin er þegar mætt og hún ætlar ekki að bíða eftir því að við klárum að rífast um Evrópusambandið.

 

Höfundur: Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður.

8. október 2026
Ákæruvaldið féll nýlega frá ákæru um hraðakstur við fyrirtöku málsins í héraðsdómi eftir að lögmaður hjá Sævari Þór & Partners hafði skilað ítarlegri greinargerð um annmarka á sönnunargögnum. Skjólstæðingur lögmannsstofunnar hafði upphaflega viðurkennt brotið en síðar dregið þá yfirlýsingu til baka. Við yfirferð á gögnum málsins kom í ljós að myndavélaupptaka lögreglu var ófullnægjandi og að tæknileg sönnunargögn ákæruvaldsins uppfylltu ekki þær kröfur sem gerðar eru til sakfellingar. Í greinargerð lögmannsins voru annmarkar á sönnunargögnum málsins raktir og færð rök fyrir því að þau nægðu ekki til sakfellingar. Í kjölfarið ákvað ákæruvaldið að falla frá ákærunni. Málið undirstrikar mikilvægi þess að fara vandlega yfir sönnunargögn og að þau standist þær kröfur sem gerðar eru til þeirra í sakamálum.
Eftir Sævar Þór Jónsson • 28. september 2026
Íslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals og ofbeldis hér á landi. Ég hef því miður kynnst þessum málum í stöfum mínum sem lögmaður og ítrekað fengið inn á mitt borð viðkvæm mál þar sem konur í viðkvæmri stöðu vegna fötlunar, alvarlegrar neyslu eða erfiðra félagslegra aðstæðna eru skipulega nýttar af mönnum af erlendum uppruna í þeim eina tilgangi að tryggja þeim síðarnefndu landvistarleyfi og fjárhagslegan ávinning. Þetta er kerfislægt ofbeldi þar sem fórnarlömbin eru undir ægivaldi gerendans. Konurnar eru ekki aðeins beittar kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi, heldur eru þær notaðar fjárhagslega. Þær eru neyddar til þess að taka lán, láta af hendi fjármuni eða afhenda húsnæði sem þær hafa fengið í gegnum félagslega kerfið, svo hægt sé að nota það í annarlegum tilgangi. Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera. Umfang þessa vandamáls er dulið, en alþjóðlegar og innlendar skýrslur sýna að þolendur með fötlun eða í virkri neyslu eru í margfaldri hættu á að verða fyrir mansali þar sem gerendur nýta sér bágborna stöðu þeirra. Jafnvel þótt þessi vandi sé þekktur að nokkru leyti innan réttarvörslukerfisins þá er blasir við mikið úrræðaleysi og vangeta til þess að takast á við hann. Úrræðaleysið ristir dýpst þegar börn eiga í hlut. Þekkt eru sláandi dæmi þess að barnaverndaryfirvöldum hafi borist skýrar og alvarlegar tilkynningar um mál þar sem rökstuddur grunur leikur á að börn séu ekki aðeins vitni að ofbeldi heldur sjálf að verða fyrir líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á heimilinu. Samt sem áður gerist lítið sem ekkert. Skýringar yfirvalda eru af skornum skammti og aðgerðaleysið er æpandi. Þegar stofnanir eru veikburða og hafa ekki nægileg sterk lagaleg úrræði til að grípa til verður staða þessara kvenna og barna hreinlega hræðileg og vonlaus. Kerfið virðist lamast þegar flækjustig mála eykst, sem verður til þess að viðkvæmustu hópar samfélagsins búa við algjört bjargarleysi. Oft leysast þessi mál þegar gerandi er kominn með langan sakaferli eða er undir rannsókn fyrir önnur alvarleg brot, þá fyrst getur lögreglan loksins skorist í leikinn og gripið inn í. Þolendur þessara brota eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að gerendur þeirra brjóti af sér margsinnis annars staðar áður en hægt er að grípa inn og bjarga einstaklingum í viðkvæmri stöðu, konum, og saklausum börnum þeirra, úr prísund nútímaþrælahalds. Það verður að vera hægt að grípa inn í og aðstoða þolendur undan þeim brotum sem framin eru á þeim. Það verður að rjúfa þögnina og krefjast þess að yfirvöld opni augun fyrir þessu skuggamansali, ef svo má að orði komast, áður en fleiri líf verða lögð í rúst. Það er siðferðisleg skylda okkar sem samfélags að vernda þá sem geta ekki varið sig sjálfir. 
15. september 2026
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur verið útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 á samnefndum lista sem er samstarfsverkefni Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er þriðja árið í röð sem stofan hlýtur þessa viðurkenningu.  Við val á Fyrirmyndarfyrirtækjum eru metin fjölmörg atriði, þar á meðal afkoma, eiginfjárhlutfall, stöðugleiki og aðrar rekstrarlegar forsendur. Fyrirtæki sem eru tilnefnd þurfa að uppfylla ströng skilyrði í greiningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins. „Að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð er staðfesting á því að við séum á réttri leið og að sá agi sem við höfum lagt í reksturinn skili sér. Þetta er ekki síst hvatning til okkar sjálfra um að halda áfram að vanda okkur, bæði í rekstri og í þjónustu við okkar skjólstæðinga,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður. Viðurkenningin sannar enn og aftur að velgengni þarf ekki eingöngu að mælast í stærð eða fjölda starfsfólks, heldur einnig í traustum rekstri, góðu stjórnunarstigi og starfsvenjum sem lúta hæstu viðmiðum um gæði. Með þriðju viðurkenningunni í röð hefur Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners fest sig enn frekar í sessi sem leiðandi fyrirtæki í sínu fagi – og meðal þeirra fáu lögmannsstofa sem uppfylla ströngustu kröfur um samkeppnishæfa eiginfjárstöðu, stöðuga afkomu og ábyrgð í rekstri.