Fyrningarreglur námslána og lagaskil nýrra laga

Fyrningarreglur námslána og lagaskil nýrra laga

 

Með lögfestingu laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna, sem tóku gildi 26. júní 2020, var gerð grundvallarbreyting á réttarumhverfi námslána hér á landi. Lögin leystu af hólmi lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og kynntu til sögunnar nýjar reglur, meðal annars um fyrningu krafna. Veigamestu breytinguna í því samhengi er að finna í 2. mgr. 26. gr. laganna, þar sem kröfur vegna námslána eru undanþegnar sérreglum 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., sem fjalla um tveggja ára fyrningarfrest krafna. Sambærilegt ákvæði var ekki að finna í eldri lögum og er því um nýmæli að ræða.

 

Framangreind breyting vekur upp spurningar um lagaskil og réttarstöðu einstaklinga sem stofnuðu til námslána í tíð eldri laga. Meginálitaefnið lýtur að því hvort heimilt sé að beita hinu nýja ákvæði á lánasamninga sem gerðir voru áður en lögin tóku gildi. Jafnframt vaknar sú spurning hvort slík beiting samrýmist grundvallarreglum íslensks réttar, svo sem banninu við afturvirkni íþyngjandi laga, og hvort hún gangi gegn réttmætum væntingum og standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

 

Breytt réttarumhverfi

Við skoðun á framangreindu álitaefni er mikilvægt að hafa í huga þá réttarbót sem felst í 165. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., eins og lagagreininni var breytt með lögum nr. 142/2010. Samkvæmt ákvæðinu fellur krafa niður tveimur árum eftir lok gjaldþrotaskipta nema lánadrottinn höfði sérstakt dómsmál og fái fyrningarslit viðurkennd. Markmið löggjafans var að tryggja gjaldþrota einstaklingum í kjölfar efnahagshrunsins raunhæft tækifæri til að koma fjármálum sínum í rétt horf og voru almennar heimildir lánadrottna til að rjúfa fyrningu þrengdar verulega.

 

Í kjölfar þessara breytinga höfðaði Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN), forveri Menntasjóðs námsmanna, fjölda dómsmála gegn gjaldþrota einstaklingum í því skyni að fá fyrningarslit viðurkennd. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að LÍN hefði ekki sýnt fram á þau skilyrði sem nauðsynleg voru til að fá fyrningarslit viðurkennd. Í dómum réttarins nr. 731/2016, 730/2016 og 645/2016 var til dæmis tekið fram að LÍN hefði ekki sýnt fram á að aðstæður hans væru sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur né að líkur væru á að fullnusta myndi fást á kröfum sjóðsins á nýjum fyrningartíma.

 

Framangreind dómaframkvæmd gefur til kynna að einstaklingar sem tóku námslán samkvæmt eldri lögum hafi mátt gera ráð fyrir að fyrningarreglur gjaldþrotalaga ættu við skuldir þeirra ef til gjaldþrotaskipta kæmi.

 

Lagabreyting og lagaskil

Með fyrrgreindri 26. gr. laga um Menntasjóð námsmanna var þessu réttarástandi, sem hafði staðið óhaggað um árabil, breytt á svipstundu. Í ákvæðinu kemur fram að um fyrningarfrest kröfu vegna námslána fari eftir ákvæðum laga um fyrningu kröfuréttinda og að ákvæði laga um gjaldþrotaskipti um lengd fyrningarfrests og sérreglur þeirra um slit fyrningar gildi ekki um námslán. Felst í þessu að Menntasjóður námsmanna þarf ekki lengur að uppfylla skilyrði um sérstaka hagsmuni til að fá fyrningu slitið heldur gilda um það almennar reglur.

 

 

Tilvísuð undanþága frá sérreglum gjaldþrotalaga hefur verið umdeild frá upphafi. Við þinglega meðferð frumvarpsins kom fram gagnrýni frá umsagnaraðilum og minnihluta allsherjar- og menntamálanefndar, sem taldi að ákvæðið bryti gegn meginreglu skuldaskilaréttar um jafnræði kröfuhafa og fæli í sér mismunun milli skuldara eftir tegund skulda. Tilgangur ákvæðisins virtist einkum sá að styrkja stöðu Menntasjóðsins í málsóknum gegn gjaldþrota einstaklingum. Jafnframt var bent á að vafi léki á því hvort heimilt væri að beita ákvæðinu afturvirkt, enda hefði það í eðli sínu íþyngjandi réttaráhrif og svipti lánþega réttindum eftir lögum um gjaldþrotaskipti.

 

Bann við afturvirkni íþyngjandi laga

Í íslenskum rétti hefur lengi verið viðurkennd sú meginregla að íþyngjandi lögum verði ekki beitt með afturvirkum hætti án skýrrar lagaheimildar. Undirstaða þeirrar reglu er einkum sú að einstaklingar geti treyst því að réttindi þeirra og skyldur mótist af þeim lögum sem gilda þegar ráðstafanir eru gerðar. Lánasamningar um námslán, líkt og aðrir gagnkvæmir samningar, mótast þannig af þeim lagaramma sem gildir við stofnun þeirra. Krafa á hendur lánþega sem tók lán samkvæmt eldri lögum er því vafalaust stofnuð á þeim lagagrundvelli.

 

Af þessum ástæðum vaknar sú spurning hvort það samrýmist téðri bannreglu að beita nýja ákvæðinu afturvirkt á slík réttarsambönd og þar með svipta skuldara þeirri réttarvernd sem fólst í eldri reglum. Rétt er að geta þess að í lögum nr. 60/2020 er ekki að finna sérstakar lagaskilareglur sem kveða á um að ákvæðið umdeilda skuli einnig gilda um eldri kröfur.M

 

Forsendur lagabreytingar

Í athugasemdum við 26. gr. í frumvarpi til laga nr. 60/2020 kemur fram að kröfur vegna námslána séu annars eðlis en flestar peningakröfur, þar sem verðgildi menntunar verði ávallt eftir hjá lánþeganum þrátt fyrir hugsanlegt gjaldþrot. Rök þessi eru heldur veik að mati höfundar, einkum í ljósi þeirrar staðreyndar að stór hópur námsmanna lýkur aldrei námi sökum áfalla, veikinda eða annarra ófyrirséðra aðstæðna. Í slíkum tilvikum er varhugavert að ganga út frá því að umræddur ávinningur, sem almennt leiðir af menntun og hið umdeilda ákvæði grundvallast á, sé til staðar hjá öllum einstaklingum.

 

Beiting þessarar íþyngjandi reglu gagnvart öllum námsmönnum, án tillits til þess hvort slíkur ávinningur sé í raun til staðar, skýtur skökku við og vekur upp áleitnar spurningar um forsendur reglunnar sem og samræmi hennar við jafnræðisjónarmið.e

 

Niðurlag

Í ljósi alls framangreinds má draga þá ályktun að réttarstaða þeirra sem tóku námslán samkvæmt eldri lögum sé að einhverju leyti óljós eftir setningu nýju laganna. Þegar horft er til reglunnar um bann við afturvirkni íþyngjandi laga, þeirra réttmætu væntinga sem lánþegar gátu haft á grundvelli fyrri dómaframkvæmdar, sem og þeirra álitaefna sem vakna um rökstuðning lagabreytingarinnar, hníga sterk rök að því að hið umdeilda ákvæði geti ekki gilt fortakslaust um alla lánþega eða eldri lánasamninga. Sú réttaróvissa sem þannig virðist hafa skapast, sem einnig birtist í gagnrýni við meðferð málsins á Alþingi, kallar á að æðsti dómstóll þjóðarinnar skeri endanlega úr um þetta álitaefni.

 

 

 

Höfundur er löglærður fulltrúi hjá lögmannsstofunni Sævar Þór & Partners

8. október 2026
Ákæruvaldið féll nýlega frá ákæru um hraðakstur við fyrirtöku málsins í héraðsdómi eftir að lögmaður hjá Sævari Þór & Partners hafði skilað ítarlegri greinargerð um annmarka á sönnunargögnum. Skjólstæðingur lögmannsstofunnar hafði upphaflega viðurkennt brotið en síðar dregið þá yfirlýsingu til baka. Við yfirferð á gögnum málsins kom í ljós að myndavélaupptaka lögreglu var ófullnægjandi og að tæknileg sönnunargögn ákæruvaldsins uppfylltu ekki þær kröfur sem gerðar eru til sakfellingar. Í greinargerð lögmannsins voru annmarkar á sönnunargögnum málsins raktir og færð rök fyrir því að þau nægðu ekki til sakfellingar. Í kjölfarið ákvað ákæruvaldið að falla frá ákærunni. Málið undirstrikar mikilvægi þess að fara vandlega yfir sönnunargögn og að þau standist þær kröfur sem gerðar eru til þeirra í sakamálum.
Eftir Sævar Þór Jónsson • 28. september 2026
Íslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals og ofbeldis hér á landi. Ég hef því miður kynnst þessum málum í stöfum mínum sem lögmaður og ítrekað fengið inn á mitt borð viðkvæm mál þar sem konur í viðkvæmri stöðu vegna fötlunar, alvarlegrar neyslu eða erfiðra félagslegra aðstæðna eru skipulega nýttar af mönnum af erlendum uppruna í þeim eina tilgangi að tryggja þeim síðarnefndu landvistarleyfi og fjárhagslegan ávinning. Þetta er kerfislægt ofbeldi þar sem fórnarlömbin eru undir ægivaldi gerendans. Konurnar eru ekki aðeins beittar kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi, heldur eru þær notaðar fjárhagslega. Þær eru neyddar til þess að taka lán, láta af hendi fjármuni eða afhenda húsnæði sem þær hafa fengið í gegnum félagslega kerfið, svo hægt sé að nota það í annarlegum tilgangi. Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera. Umfang þessa vandamáls er dulið, en alþjóðlegar og innlendar skýrslur sýna að þolendur með fötlun eða í virkri neyslu eru í margfaldri hættu á að verða fyrir mansali þar sem gerendur nýta sér bágborna stöðu þeirra. Jafnvel þótt þessi vandi sé þekktur að nokkru leyti innan réttarvörslukerfisins þá er blasir við mikið úrræðaleysi og vangeta til þess að takast á við hann. Úrræðaleysið ristir dýpst þegar börn eiga í hlut. Þekkt eru sláandi dæmi þess að barnaverndaryfirvöldum hafi borist skýrar og alvarlegar tilkynningar um mál þar sem rökstuddur grunur leikur á að börn séu ekki aðeins vitni að ofbeldi heldur sjálf að verða fyrir líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á heimilinu. Samt sem áður gerist lítið sem ekkert. Skýringar yfirvalda eru af skornum skammti og aðgerðaleysið er æpandi. Þegar stofnanir eru veikburða og hafa ekki nægileg sterk lagaleg úrræði til að grípa til verður staða þessara kvenna og barna hreinlega hræðileg og vonlaus. Kerfið virðist lamast þegar flækjustig mála eykst, sem verður til þess að viðkvæmustu hópar samfélagsins búa við algjört bjargarleysi. Oft leysast þessi mál þegar gerandi er kominn með langan sakaferli eða er undir rannsókn fyrir önnur alvarleg brot, þá fyrst getur lögreglan loksins skorist í leikinn og gripið inn í. Þolendur þessara brota eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að gerendur þeirra brjóti af sér margsinnis annars staðar áður en hægt er að grípa inn og bjarga einstaklingum í viðkvæmri stöðu, konum, og saklausum börnum þeirra, úr prísund nútímaþrælahalds. Það verður að vera hægt að grípa inn í og aðstoða þolendur undan þeim brotum sem framin eru á þeim. Það verður að rjúfa þögnina og krefjast þess að yfirvöld opni augun fyrir þessu skuggamansali, ef svo má að orði komast, áður en fleiri líf verða lögð í rúst. Það er siðferðisleg skylda okkar sem samfélags að vernda þá sem geta ekki varið sig sjálfir. 
15. september 2026
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur verið útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 á samnefndum lista sem er samstarfsverkefni Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er þriðja árið í röð sem stofan hlýtur þessa viðurkenningu.  Við val á Fyrirmyndarfyrirtækjum eru metin fjölmörg atriði, þar á meðal afkoma, eiginfjárhlutfall, stöðugleiki og aðrar rekstrarlegar forsendur. Fyrirtæki sem eru tilnefnd þurfa að uppfylla ströng skilyrði í greiningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins. „Að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð er staðfesting á því að við séum á réttri leið og að sá agi sem við höfum lagt í reksturinn skili sér. Þetta er ekki síst hvatning til okkar sjálfra um að halda áfram að vanda okkur, bæði í rekstri og í þjónustu við okkar skjólstæðinga,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður. Viðurkenningin sannar enn og aftur að velgengni þarf ekki eingöngu að mælast í stærð eða fjölda starfsfólks, heldur einnig í traustum rekstri, góðu stjórnunarstigi og starfsvenjum sem lúta hæstu viðmiðum um gæði. Með þriðju viðurkenningunni í röð hefur Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners fest sig enn frekar í sessi sem leiðandi fyrirtæki í sínu fagi – og meðal þeirra fáu lögmannsstofa sem uppfylla ströngustu kröfur um samkeppnishæfa eiginfjárstöðu, stöðuga afkomu og ábyrgð í rekstri.