For­eldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir nú­verandi og fyrr­verandi starfs­mönnum Icelandair

Foreldrar Sólons Guðmundssonar heitins ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um frávísun meiðyrðamáls þeirra gegn Icelandair. Þau hyggjast þess í stað óska eftir skýrslutökum yfir meðal annars núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair. Markmiðið er að afla gagna áður en tekin verður ákvörðun um framhald málsins.


Þetta staðfestir Sævar Þór Jónsson, lögmaður foreldra Sólons, þeirra Rutar Ólafsdóttur og Guðmundar Þórðarsonar.


Beiðnin verður lögð fram á grundvelli 12. kafla laga um meðferð einkamála, sem fjallar um öflun sönnunargagna án þess að mál hafi verið höfðað. Að sögn Sævars er óskað eftir munnlegum vitnisburði um málsmeðferð, samskipti og ákvarðanatöku hjá Icelandair í aðdraganda andláts Sólons.


Héraðsdómur Reykjaness vísaði meiðyrðamáli foreldra Sólons gegn Icelandair frá dómi í lok maí. Frávísunin fól ekki í sér efnislega niðurstöðu um þær kröfur sem foreldrar Sólons höfðu uppi í málinu.

Málið snerist um ummæli sem foreldrar Sólons töldu meiðandi í hans garð. Lögmaður þeirra sagði eftir úrskurðinn að niðurstaða dómsins lyti að því hvort málið yrði tekið til efnismeðferðar, en ekki að efni ágreiningsins sjálfs.


Sólon var 28 ára gamall flugmaður hjá Icelandair þegar hann lést í ágúst árið 2024. Hann hafði starfað hjá félaginu í um sex ár.

Foreldrar Sólons hafa sagt að hann hafi í apríl 2024 lagt fram kvörtun til mannauðsdeildar Icelandair vegna framkomu samstarfskvenna og gagnrýnt málsmeðferð félagsins í aðdraganda starfsloka hans.

Þau hafa jafnframt sagt að á fundi hjá Icelandair 22. ágúst 2024 hafi Sóloni verið greint frá nýjum ásökunum án þess að hann fengi að þeirra mati fullnægjandi upplýsingar um efni þeirra.


Sólon lét af störfum hjá Icelandair daginn eftir fundinn. Tveimur dögum síðar fannst hann látinn.


Icelandair hefur áður sagt að félaginu sé ekki heimilt að tjá sig um einstök starfsmannamál. Félagið hefur jafnframt sagt að það muni aðstoða yfirvöld eftir því sem unnt sé, fari málið í þar til gerðan farveg.

Með beiðni um skýrslutökur hyggjast foreldrar Sólons nú freista þess að afla frekari gagna áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref.

15. september 2026
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur verið útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 á samnefndum lista sem er samstarfsverkefni Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er þriðja árið í röð sem stofan hlýtur þessa viðurkenningu.  Við val á Fyrirmyndarfyrirtækjum eru metin fjölmörg atriði, þar á meðal afkoma, eiginfjárhlutfall, stöðugleiki og aðrar rekstrarlegar forsendur. Fyrirtæki sem eru tilnefnd þurfa að uppfylla ströng skilyrði í greiningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins. „Að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð er staðfesting á því að við séum á réttri leið og að sá agi sem við höfum lagt í reksturinn skili sér. Þetta er ekki síst hvatning til okkar sjálfra um að halda áfram að vanda okkur, bæði í rekstri og í þjónustu við okkar skjólstæðinga,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður. Viðurkenningin sannar enn og aftur að velgengni þarf ekki eingöngu að mælast í stærð eða fjölda starfsfólks, heldur einnig í traustum rekstri, góðu stjórnunarstigi og starfsvenjum sem lúta hæstu viðmiðum um gæði. Með þriðju viðurkenningunni í röð hefur Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners fest sig enn frekar í sessi sem leiðandi fyrirtæki í sínu fagi – og meðal þeirra fáu lögmannsstofa sem uppfylla ströngustu kröfur um samkeppnishæfa eiginfjárstöðu, stöðuga afkomu og ábyrgð í rekstri.
3. september 2026
Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli um milligöngu við bifreiðakaup, mál nr. 529/2026 Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Vesturlands um að vísa frá dómi máli þar sem sóknaraðili krafðist greiðslu eftirstöðva vegna milligöngu um kaup á bifreið fyrir varnaraðila, á grundvelli munnlegs samkomulags. Sóknaraðili hafði annast kaupin í gegnum atvinnurekstur sinn í Þýskalandi. Héraðsdómur hafði talið málið vanreifað og óvissu ríkja um samningssamband og aðild, meðal annars vegna óskýrleika um félagaform rekstrar sóknaraðila erlendis. Landsréttur taldi hins vegar málatilbúnað sóknaraðila nægilega skýran til að varnaraðili gæti tekið til varna og dómari leyst úr málinu. Í niðurstöðu Landsréttar kom fram að ágreiningur um hvort munnlegt samkomulag hefði komist á, sem og hvort sóknaraðili gæti sótt kröfuna í eigin nafni, séu atriði sem eigi að skera úr um við efnismeðferð málsins, ekki formgallar sem leiði eigi til frávísunar. Þá áréttaði rétturinn leiðbeiningarskyldu dómara samkvæmt 104. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, komi til þess að frekari skýringa sé þörf. Málinu var vísað aftur til Héraðsdóms Vesturlands til efnismeðferðar.
Eftir Sævar Þór Jónsson 1. september 2026
Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi Sævars Þórs & Partners, var nýverið endurkjörinn formaður stjórnar Hugarafls, grasrótarsamtaka fólks með reynslu af andlegum áskorunum. Sævar Þór hefur setið í stjórninni frá árinu 2024 ásamt Birki Jóni Jónssyni og Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur, en Einar Benedikt Sigurðsson kom nýr inn í stjórnina að þessu sinni. Að sögn Sævars Þórs er meginmarkmið stjórnarinnar að styðja við stjórnendur og starfsfólk samtakanna og efla samskipti við stjórnvöld og samfélagið. Hann leggur jafnframt áherslu á mikilvægi markaðsátaksins Allt í lagi, sem ætlað er að vekja athygli á starfi Hugarafls og tryggja að raddir notenda þjónustunnar heyrist í umræðu um geðheilbrigðismál. Á Sævari Þór & Partners er lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð og stuðning við mikilvæg málefni á borð við geðheilbrigði, sem endurspeglast í þátttöku Sævars Þórs í starfi Hugarafls.