Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair

Sævar Þór Jónsson hrl. hefur tekið að sér mál foreldra Sólons heitins Guðmundssonar
gegn Icelandair. Sólon hafði starfað sem flugmaður hjá félaginu í sex ár þegar honum
var gert að segja upp störfum í kjölfar ásakana á hendur honum af hálfu þriggja
samstarfskvenna sem kröfðust nafnleyndar. Þremur dögum síðar féll Sólon fyrir eigin
hendi, þann 25. ágúst 2024.
Foreldrar Sólons fara fram á að tvenn ummæli Icelandair í tengslum við málið verði dæmd ómerk og að upplýst verði á hverju félagið byggði það mat sitt að Sólon væri hættulegur sínu samstarfsfólki. Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 18. mars.

Eftir Sævar Þór Jónsson
•
21. ágúst 2026
Sævar Þór og Partners er annað árið í röð meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem standast öll skilyrði í greiningarvinnu Creditinfo og hefur verið útnefnt Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Við erum afar stolt yfir að hljóta þessa viðurkenningu á nýjan leik og þakklát okkar samhenta teymi og þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem treysta okkur fyrir krefjandi verkefnum. Framúrskarandi fyrirtæki er vottun Creditinfo til þeirra íslensku fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á traustum stoðum og hafa náð framúrskarandi árangri í rekstri.

Eftir Sævar Þór Jónsson
•
20. ágúst 2026
Ekki leið langur tími á milli þess að MAST sendi boðun um stöðvun á starfsemi Sólhesta og fallið var frá henni. Stöðvunin hafði verið boðuð þann 25. mars en var dregin til baka þann 10. apríl sl. Í millitíðinni hafði Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður sent MAST andmæli við stöðvuninni fyrir hönd Sólhesta „Í samskiptum mínum við MAST var þeim bent á að umbjóðendur mínir, sem höfðu þá tiltölulega nýlega tekið við rekstrinum, voru að fara út í miklar breytingar sem þá þegar voru hafnar. MAST fór í úttekt á því og komst að þeirri niðurstöðu að sú væri raunin,“ segir Sævar Þór. Hér má lesa nýlega frétt á RÚV um málið.

Eftir Sævar Þór Jónsson
•
19. ágúst 2026
Nýverið féll athyglisverður úrskurður í Héraðsdómi Reykjaness þar sem dómstóllinn féllst á kröfu um endurupptöku gjaldþrotamáls og felldi öll réttaráhrif fyrri úrskurðar úr gildi. Sævar Þór Jónsson , lögmaður og eigandi stofunnar, gætti hagsmuna fyrirtækisins í málinu. Málið átti rætur að rekja til þess að Skatturinn hafði krafist gjaldþrotaskipta á hendur félaginu vegna vanskila á ársreikningum, og var úrskurður þess efnis kveðinn upp í kjölfar útivistar. Eftir að Sævar Þór tók að sér hagsmunagæslu fyrir félagið var lagt fram ítarlegt erindi þar sem sýnt var fram á að ársreikningum hefði nú verið skilað og vanskilin leiðrétt. Þá var sýnt fram á að félagið væri fyllilega greiðslufært og fært um að standa við allar skuldbindingar sínar. Í úrskurði sínum féllst dómstóllinn á röksemdir lögmannsins. Var staðfest að þar sem forsendur vanskila væru brostnar og skilyrðum um greiðslugetu fullnægt, væru ríkar ástæður til að endurupptaka málið og fella réttaráhrif gjaldþrotsins niður. „Þessi niðurstaða sýnir hversu mikilvægt það er að bregðast hratt og rétt við ef upp koma flókin ágreiningsefni við stjórnvöld. Við fögnum því að dómstólar hafi fallist á okkar röksemdir og að rekstur félagsins geti haldið áfram óhindraður,“ segir Sævar Þór Jónsson lögmaður. Hjá Lögmannsstofu Sævars Þórs Jónssonar & Partners leggjum við ríka áherslu á harðfylgna og faglega hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki í rekstrarvanda.






