Dómur mildaður í stóru smygl máli.
Málið varðar stórfellt fíkniefnalagabrot, nánar tiltekið innflutning rúmlega 13 kílóa af kókaíni með verulegum styrkleika. Ákærði flutti efnið til landsins frá Brussel í apríl á þessu ári.
Héraðsdómur dæmdi ákærða í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotið. Ákærði hefur skýlaust játað sök og lýst einlægri iðrun fyrir dómi.
Fyrir Landsrétti lagði verjandi ákærða áherslu á nokkur atriði. Í fyrsta lagi taldi hann að héraðsdómur hefði ekki tekið nægilegt tillit til aldurs ákærða.
Í öðru lagi hélt hann því fram að ekki hefði verið litið nægilega til þess að ákærði hefði ekki komið að skipulagningu innflutningsins og að hann hefði eingöngu verið í hlutverki burðardýrs.
Í þriðja lagi taldi verjandinn að refsingin væri ekki í samræmi við dómvenju í sambærilegum málum, og að hún væri of þung að mati hans.
Að þessu virtu fór verjandi mannsins, Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður, fram á að refsing ákærða yrði verulega lækkuð.
Niðurstaða Landsréttar var að refsing ákærða var færð niður um eitt og hálft ár – eða niður í 5 ár.









