Bætur úr sjúklingatryggingu

Í dag bárust ánægjuleg tíðindi frá Sjúkratryggingum Íslands, sem tengjast máli okkar skjólstæðings.


Málið varðar meðferð á Landspítala þar sem talið var að meðferðin hefði ekki verið framkvæmd í samræmi við bestu fyrirmæli og reynslu á sviðinu. Ákveðið var að sýna hefði átt meiri aðgát, sérstaklega varðandi lyfjagjöf, sem leiddi til alvarlegrar hjartsláttartruflunar. Einnig var það mat Sjúkratrygginga Íslands að meðferðin hafi

ekki verið fullnægjandi, þar sem gleymdist að fjarlægja aðskotahlut úr legu sjúklings

á gjörgæslu yfir 12 klst.


Í ljósi þessa var bótaskylda samþykkt vegna heilsutjóns sem tjónþoli varð fyrir.


Við erum stolt af því að geta staðið við hlið skjólstæðinga okkar í þeim málum sem

varða þeirra réttindi og velferð.

23. febrúar 2026
Landsréttur hefur nýverið fellt úr gildi úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu umbjóðanda stofunnar um dómkvaðningu matsmanns. Málið varðar kröfu tiltekins húsfélags á hendur umbjóðanda okkar vegna byggingarframkvæmda. Landsréttur felldi úrskurðinn úr gildi á þeim grundvelli að hið umbeðna mat væri ekki bersýnilega tilgangslaust. Taldi rétturinn að ekki yrði fullyrt að umbeðin sönnunarfærsla lyti að atriðum sem ekki skiptu máli fyrir gagnkröfu umbjóðanda okkar, né að matsgerðin væri þýðingarlaus til sönnunar á kröfunni. Niðurstaðan undirstrikar mikilvægi þess að matsbeiðni verði ekki metin tilgangslaus nema ljóst sé að hún geti ekki þjónað ætluðum tilgangi og sönnunargildi sínu í málinu. Enn fremur tók Landsréttur skýrt fram að ekki væri rétt að taka efnislega afstöðu til málatilbúnaðar umbjóðanda okkar á þessu stigi málsins. Um er að ræða mikilvæga leiðréttingu á þeirri nálgun héraðsdóms að meta efnisrök umbjóðanda okkar áður en mat hefði farið fram. Með því að fella úrskurð héraðsdóms úr gildi var kröfum húsfélagsins gegn umræddri matsbeiðni og um staðfestingu úrskurðar héraðsdóms, jafnframt hafnað. Niðurstaða Landsréttar er umbjóðanda okkar mikilvæg þar sem hún veitir honum tækifæri til að fá dómkvaddan matsmann til að meta umdeild atriði málsins. Ekki er útilokað að matið geti haft veruleg áhrif á endanlega niðurstöðu þess. Lesa grein
17. janúar 2026
Í gær féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness þar sem skjólstæðingur okkar var sýknaður af öllum ákærum. Málið er skýrt dæmi um hversu mikilvægt er að tryggja réttarríkið og réttláta málsmeðferð – einnig þegar ákæruvaldið ákveður að sækja mál sem voru fyrirséð að myndu ekki leiða til sakfellingar.  Lögmaður okkar, Sævar Þór Jónsson, lýsti því yfir að vegferð ákæruvaldsins hafi verið til skammar og gagn­rýnir harðlega ómarkviss vinnubrögð sem bitna ekki einungis á réttindum einstaklings heldur einnig á opinberu fé og trausti til kerfisins.  Réttlæti og fagleg nálgun skiptir máli. Við hjá Sævars Þórs & partners munum áfram standa vörð um rétt skjólstæðinga og tryggja að lög og réttur séu virt – í öllum málum. Lesa grein
12. janúar 2026
Í nýlegri umfjöllun fjölmiðla kemur fram að barn, sem grunur lék á um ofbeldi í leikskóla, hafi ekki notið réttargæslu þrátt fyrir að skilyrði samkvæmt lögum virðist hafa verið til staðar. Málið varpar ljósi á mikilvægi þess að réttindi barna séu tryggð í framkvæmd, sérstaklega þegar þau koma að refsiverðum eða alvarlegum málum. Réttargæsla er lykilþáttur í því að tryggja réttláta málsmeðferð og vernd hagsmuna barnsins, bæði gagnvart kerfinu og öðrum aðilum. Hjá Lögfræðistofan Sævar Þór & Partners leggjum við áherslu á réttaröryggi barna og teljum brýnt að verklag í slíkum málum sé skýrt, samræmt og í fullu samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Fréttina má lesa hér