Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk

Eftir Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmann

Það er fastur og dýr punktur í íslenskri stjórnun að fresta vandanum þar til hann verður að neyðarástandi. Skortur á framtíðarsýn veldur því að við byggjum nánast undantekningarlaust of lítið og of seint. Hólmsheiði er tiltölulega nýtt fangelsi, en það er þegar yfirfullt og sprungið. Þegar nýtt tekur við af því eldra hér á landi er það strax orðið úrelt, vegna þess að ákvarðanir eru teknar til skamms tíma í senn í stað þess að skipuleggja og tryggja innviði landsins til næstu tveggja eða þriggja áratuga.


Vandinn liggur ekki síst í því að það skortir að stjórnmálamenn hafi raunverulega reynslu af þeim málaflokkum sem þeir taka að sér, eða hafi sér við hlið fólk sem hefur unnið innan kerfisins á sem víðtækustum fleti. Þótt sýn ráðherra geti verið skýr, þá étur báknið og kerfið sjálft oft upp áherslur stjórnmálamannsins. Það er því ekki bara við pólitíkina eina að sakast, kerfið sjálft þarfnast algjörrar endurskoðunar og nýrrar forgangsröðunar.


Sem lögmaður sé ég dæmin um þetta daglega. Íslenska fangelsiskerfið er í molum og það blasir við öllum sem til þekkja. Auðvitað eru fleiri innviðir sem eiga undir högg að sækja, en staðreyndin er sú að við höfum í of langan tíma vanrækt fangelsismálin og falið okkur á bak við innantóma kröfu um hagræðingu. Hagræðing í þessu kerfi eins og staðan er í dag mun aðeins skila okkur fleiri og stærri vandamálum inn í framtíðina.

Litla-Hraun, sem upphaflega var stofnað árið 1929, er ekki boðlegt nokkrum manni lengur. Húsnæðið er í niðurníðslu og hreinlega heilsuspillandi vegna myglu og slæms loftbúnaðar fyrir alla þá karlfanga sem þar dvelja og þá starfsmenn sem þar vinna. Aðstaða fyrir heimsóknir er léleg og ófullnægjandi, og aðbúnaður bæði fanga og fangavarða er með öllu óviðunandi. Öryggismál kerfisins eru í reynd í lamasessi. Þótt reynt sé að draga dul á það opinberlega, vitum við sem mætum í fangelsin að þau eru undirmönnuð, skortir nútíma tækni og þau standa frammi fyrir vaxandi hörku og ofbeldi innan veggjanna.


Alvarlegasta dæmið um þessa vanrækslu lýtur þó að heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu. Ríkisendurskoðun hefur í stjórnsýsluúttekt sinni gert alvarlegar athugasemdir við þetta fyrirkomulag. Staðreyndin er sú að hjá Fangelsismálastofnun starfa aðeins fjórir sálfræðingar í samtals þremur stöðugildum fyrir öll fangelsi landsins. Það sjá allir að þrjú stöðugildi geta með engu móti sinnt raunverulegri meðferðarvinnu fyrir mörg hundruð fanga á ári. Sálgæsla og geðheilbrigðisþjónusta, sem ætti að vera í algjörum forgangi við að hjálpa mönnum að byggja upp nýtt líf, er nánast fjarverandi. Sú þjónusta sem fangar fá í dag er því miður of oft fólgin í því að lyfja einstaklinga niður frekar en að veita þeim almennilega sálfræðilega viðtalsmeðferð. Þetta er ekki bara ómannúðlegt, þetta er stjórnunarleg hneisa.


Markmiðið með fangelsisvist samkvæmt lögum á að vera skýrt; að veita þeim sem þess óska tækifæri og tól til ábyrgðar og farsællar endurkomu út í samfélagið. Mönnum hættir til að falla aftur í sama afbrotamynstrið þegar þeir þekkja ekkert annað. Þetta á sérstaklega við um unga gerendur sem við sjáum í auknum mæli í skipulagðri brotastarfsemi og ofbeldisverkum í dag. Ef kerfið vinnur ekki gegn þessu á meðan á afplánun stendur, fáum við þessa einstaklinga beint aftur út í samfélagið án betrunar.

Lausnin felst ekki í innantómum loforðum um þyngri dóma. Hún felst í því að þora að byggja upp kerfi sem tekur við þeim sem brjóta af sér með það markmið að endurreisa þessa einstaklinga þannig að þeir sjái sjálfir hag í því að vinna sig upp úr þeim vítahring sem þeir eru fastir í.


Stjórnvöld hafa of lengi látið þennan málaflokk mæta afgangi. Ef ekkert verður gert strax innan næstu fimm ára eigum við eftir að sjá mjög flókin, dýr og erfið úrlausnarefni í samfélaginu sem tengjast þessu beint. Við þurfum ekki fleiri tímabundna plástra. Við þurfum ákveðni og alvöru forystu sem byggir á raunverulegri reynslu og þorir að hanna kerfin okkar til framtíðar.


Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður. 



15. september 2026
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners hefur verið útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 á samnefndum lista sem er samstarfsverkefni Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er þriðja árið í röð sem stofan hlýtur þessa viðurkenningu.  Við val á Fyrirmyndarfyrirtækjum eru metin fjölmörg atriði, þar á meðal afkoma, eiginfjárhlutfall, stöðugleiki og aðrar rekstrarlegar forsendur. Fyrirtæki sem eru tilnefnd þurfa að uppfylla ströng skilyrði í greiningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins. „Að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð er staðfesting á því að við séum á réttri leið og að sá agi sem við höfum lagt í reksturinn skili sér. Þetta er ekki síst hvatning til okkar sjálfra um að halda áfram að vanda okkur, bæði í rekstri og í þjónustu við okkar skjólstæðinga,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður. Viðurkenningin sannar enn og aftur að velgengni þarf ekki eingöngu að mælast í stærð eða fjölda starfsfólks, heldur einnig í traustum rekstri, góðu stjórnunarstigi og starfsvenjum sem lúta hæstu viðmiðum um gæði. Með þriðju viðurkenningunni í röð hefur Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners fest sig enn frekar í sessi sem leiðandi fyrirtæki í sínu fagi – og meðal þeirra fáu lögmannsstofa sem uppfylla ströngustu kröfur um samkeppnishæfa eiginfjárstöðu, stöðuga afkomu og ábyrgð í rekstri.
3. september 2026
Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli um milligöngu við bifreiðakaup, mál nr. 529/2026 Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Vesturlands um að vísa frá dómi máli þar sem sóknaraðili krafðist greiðslu eftirstöðva vegna milligöngu um kaup á bifreið fyrir varnaraðila, á grundvelli munnlegs samkomulags. Sóknaraðili hafði annast kaupin í gegnum atvinnurekstur sinn í Þýskalandi. Héraðsdómur hafði talið málið vanreifað og óvissu ríkja um samningssamband og aðild, meðal annars vegna óskýrleika um félagaform rekstrar sóknaraðila erlendis. Landsréttur taldi hins vegar málatilbúnað sóknaraðila nægilega skýran til að varnaraðili gæti tekið til varna og dómari leyst úr málinu. Í niðurstöðu Landsréttar kom fram að ágreiningur um hvort munnlegt samkomulag hefði komist á, sem og hvort sóknaraðili gæti sótt kröfuna í eigin nafni, séu atriði sem eigi að skera úr um við efnismeðferð málsins, ekki formgallar sem leiði eigi til frávísunar. Þá áréttaði rétturinn leiðbeiningarskyldu dómara samkvæmt 104. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, komi til þess að frekari skýringa sé þörf. Málinu var vísað aftur til Héraðsdóms Vesturlands til efnismeðferðar.
Eftir Sævar Þór Jónsson • 1. september 2026
Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi Sævars Þórs & Partners, var nýverið endurkjörinn formaður stjórnar Hugarafls, grasrótarsamtaka fólks með reynslu af andlegum áskorunum. Sævar Þór hefur setið í stjórninni frá árinu 2024 ásamt Birki Jóni Jónssyni og Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur, en Einar Benedikt Sigurðsson kom nýr inn í stjórnina að þessu sinni. Að sögn Sævars Þórs er meginmarkmið stjórnarinnar að styðja við stjórnendur og starfsfólk samtakanna og efla samskipti við stjórnvöld og samfélagið. Hann leggur jafnframt áherslu á mikilvægi markaðsátaksins Allt í lagi, sem ætlað er að vekja athygli á starfi Hugarafls og tryggja að raddir notenda þjónustunnar heyrist í umræðu um geðheilbrigðismál. Á Sævari Þór & Partners er lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð og stuðning við mikilvæg málefni á borð við geðheilbrigði, sem endurspeglast í þátttöku Sævars Þórs í starfi Hugarafls.